TrackBack URL: http://kort.he.klaki.net/MTPing
BBC flytur frétt af stöðu mála á Evrópska staðsetningakerfinu.
Kerfið verður byggt upp í 2 fösum. Sá fyrri eru gerfihnettir sem bæta nákvæmni núverandi GPS kerfis með svipað og WAAS kerfið gerir. Sá seinni er nýtt staðsetningarkefi, óháð GPS.
Varanleg slóðÉg held að kortavefurinn sé nothæfari fyrir fleiri ef sjálfgefna sýnin á kort er PNG mynd sem allir vafrar geta sýnt og hef því skipt. Vilji menn SVG útgáfuna þarf bara að smella á myndina eða þar til gerðan hlekk.
Varanleg slóðEftir gönguferð Hrafnkels, Más og Loga Garps hefur Seltjarnarnesinu og hluta af Granda verið bætt við Reykjavíkurkortið. Gróttu vantar enda er lokað þangað 1.maí til 1.júlí.
Varanleg slóðBætti Arnarnesinu inn á Reykjavíkurkortið. Glöggir menn sjá að ferillinn fyrir Arnarnesið hefur meiri smáatriði/fleiri punkta en ferillinn fyrir Kársnesið. Ég uppgötvaði að hægt er að láta GPS tækið safna punktum mis þétt. Lét það safna á hæstu stillingu.
Varanleg slóð